pexels-mateusz-dach-99805-1674432

Jólamarkaðs-ferð

Upplifðu töfra aðventunnar í München. Berlínur í München lífga upp á skammdegið með ferð um jólamarkaðina: Lykilorðin eru glühwein, jólaskreytingar, ljós og sölubásar, fullir gjafavöru og fallegu handverki í einni af höfuðborgum jólamarkaðanna.

Lengd:

Ca. 3 klukkustundir

Verð:

80 € á mann
Börn yngri en 12 ára: 40 €

pexels-calebowensphoto-19320000

Ferðin hefst á lestarstöðinni Odeonsplatz og þaðan trítlum við milli nokkurra jólamarkaða í miðborginni. Við fléttum alls konar fróðleik inn um markaðina, borgina og aðventu- og jólahátíðina í Þýskalandi. Stoppað verður á helstu stöðum og Berlínur bjóða upp á útvalin, árstíðarbundin herlegheit í fljótandi og föstu formi.

Aðrar ferðir í München

Berlínur Íslensk Leiðsögn

Berlinur, 2022 © All rights reserved.
Designed by Erlis Zarishta, MOR Design